Þverhandarlangur gúrkubiti, 1-2 tómatar, fjórðungur úr grapefruit (skrælað, ekki pressað), 2 meðalstórar gulrætur, 1/2 avocado, áttundi hluti af vatnsmelónu og 1 banani. Allt sett í blender og smassað þar til úr verður þykkur grautur sem þó má drekka úr glasi. Þetta er týpiskur morgunverður í Dofra þessa dagana. Ég er ekki frá því að það vanti prótein í mixið þannig að Nupo próteinduft er gott þegar líður á daginn.
Til að megrast ekki um of er gott að snarla kex og kökur (t.d. Sweet Oat Crispies frá IKEA (Svíarnir eru svo mikið fyrir hollustu)) og borða stóra skál af ís á kvöldin með sjónvarpinu. Og fyrst ég minnnist á sjónvarp þá er annað af bestu sjónvarpstímabilum ársins runnið upp og varir fram að jólum. Hitt tímabilið er frá miðjum janúar og fram á vor. Allt fullt af rosa fínum fræðsluþáttum frá BBC, Open University og fleirum með efni sem ég hef áhuga á, einkum sögu. Og svo auðvitað fótbolti.

Comments