Yfir 20% fullorðinna Íslendinga þjáist af offitu. Ég er einn af þeim. Offita er skilgreind þannig að BMI sé 30 eða hærri og ég er í tæplaga 34. Þetta er það hæsta sem ég hef komist og ég er hundfúll með það. Fyrir rúmum tveimur árum byrjaði ég í
heilsuátaki, og af því ég hef gegnum árin reynt allt til að halda mér grennri, dugði ekkert minna en Herbalife í þetta skipti. Ég náði strax góðum árangri og léttist um 4-5 kg. Fyrrihluta ársins í ár var ég flottastur, um 7 kg léttari en í upphafi og BMI 31,6. Eftir það hefur allt farið á veri veg og ég er kominn í upphafsþyngd aftur.
Þegar ég hætti að drekka brennivín árið 1989 þá var það m.a. vegna þess að ég hafði verið edrú 1982-84 og ég mundi svo vel hvað það var yndislegt. Eins er þetta núna. Ég man svo vel hversu vel mér leið að vera "bara" 107 kg. Allt annað líf. Ég var miklu léttari í spori og balansinn breytist líka. Maður hættir að vera svona framþungur þegar maður léttist og við það breytist göngulagið. Fötin fara miklu betur á manni og og satt að segja fannst mér ég vera miklu flottari. Það er ekki lítils virði.
Ég tók lífslíkupróf í sumar og tók það tvisvar. Fyrst sagði ég satt og rétt frá öllu eftir bestu vitund. Síðan breytti ég framburðinum og sagðist vera um 10 kg léttari en ég var og sagðist éta hollasta mat í heimi. Bara grænmet, ávexti og kjúklinga, eða þannig. Öðru svaraði ég á sama hátt og fyrr. Niðurstaðan kom mér hressilega á óvart því bara þessi breyting bætti 10 árum við lífslíkurnar.
Til að gera stutta sögu styttri þá er ég kominn í megrun. Ekkert heilsuátakskjaftæði bara hörku megrun. En ég hata grænmeti!
Ég held að aðal málið á Dofra heimilinu er að minnka kex og köku át, ég held að þú ættir að reyna að finna eitthvað snack sem er holt og þér finnst gott!
Posted by: www.facebook.com/profile.php?id=555005930 | fimmtudagur, 01 október 2009 at 15:22
Nú er ég kominn með alveg pottþétta formúlu.
1) Ég þarf að alkalisera vatnið sem ég dekk og er þegar búinn að panta dropa sem ég get náð ph 10 eða svo fyrir vatnið. Öll vandamál, ég sagði ÖLL, stafa af því að við erum of súr. Ég meina ekki í viðmóti heldur efnafræðilega. Það segir Robert Young.
http://www.phmiracleliving.com/
2) Ég er nú þegar farinn að nota LifeWave plástra. Þetta er sko nanó dæmi og alveg gjörsamlega óbrigðult. Mig er hreinlega farið að langa í grænmeti. Þetta getur ekki brugðist núna.
http://lifewave.com/
Maður er í góðum málum núna.
Posted by: ggauti | fimmtudagur, 01 október 2009 at 15:45