Þessar spurningu (Hver er ég?) hafa menn velt fyrir sér frá örófi aldanna. Ég hef oft dáðst að hinum ýmsu eiginleikum sem við erum gædd og mér finnst bæði ótrúlegir og algjörlega óskiljanlegir. Þetta á t.d við um eiginleikana sem gera okkur kleift að skynja umhverfi okkar. Í mínum huga eru ytri skynfærin tiltölulega mekanisk skilningarvit. Þau lúta eðlisfræðilegum eiginleikum sem ég skil. Þ.e.a.s. ég skil hvernig augað tekur við ljósinu í gegnum ljósop og linsu og varpar því á flöt. Ég get líka ímyndað mér hvernig skynjarar nema upplýsingarnar og koma boðum áleiðis til heilans. Hitt er mér óskiljanlegt hvernig heilinn vinnur úr upplýsingunum. Sama er með lykt, heyrn, bragð og tilfinningu. Ég skil hvernig skynjararnir virka hvernig og skilaboðin eru flutt áleiðis til heilans. Þetta eru bara rafboð. En svo ekki söguna meir.
Ég hef löngum dáðst að því hvernig heilinn vinnur úr öllum þessum skynjunum og lætur líkaman bregðast við flóknustu aðstæðum á viðeigani hátt. Ég set þetta í sjónrænt samhengi þegar ég horfi á fótbolta, amerískan eða evrópskan, og fylgist með leikmönnum senda langar sendingar nákvæmlega á staðin þar sem annar leikmaður verður eftir nokkrar sekúndur. Fyrir utan að stjórna flókinni tæknilegri útfærslu þarf heilinn að líka að sjá inn í framtíðina um óorðna hluti.
Magnað. En þetta geta nánast allar lifandi verur gert.
Í gærkvöldi horfði ég á þátt úr Horizons seríu BBC þar sem sögumaðurinn og stærðfræðingurinn Marcus du Sautoy var að spá í enn flóknari hluti. Það er þetta með sjálfið eða sálina. Eftir því sm best er vitað búa aðeins þrjú dýr á jörðinni hafa sjálfsmeðvitund þar sem einstaklingurinn upplifir sig sem sjálfstæða einstakling sem býr yfir meðvituðum minningum og getur haft meðvituð áhrif á líðan sína og gerðir í nútíð og framtíð. Þetta eru auk manna simpansar og órangútan. Og hvað í ósköpunum er þetta sjálf og hvernig virkar það í líkamanum?
Með tilraunum hafa menn komist að því að sjálfsmeðvitund myndast með mönnum á aldrinum 18-22 mánaða. Þetta er staðfest með því að setja merki á andlit barns áður en það skoðar sig í spegli. Ef barnið hefur þroskað með sér sjálfsmeðvitund ber það hendina ósjálfrátt að þessu nýja útlitseinkenni en annars ekki. Menn hafa líka gert tilraunir á mönnum með því að setja þá í sneiðmyndatæki með þeim fyrirmælum að þeir smelli á hnapp í hægri eða vinstri hendi að eigin geðþótta og að því er virðist eftir tilviljun. Það er auðvitað fylgst með starfsemi heilans og lesið úr upplýsingunum.
Og hér kemur bomban. Maðurinn í sneiðmyndatækinu telur sig vera að smella hnöppunum á algjörlega tilviljanakenndan hátt og veit aðeins með sekúndubrots fyrirvara á hvorn hnappinn hann mun ýta. En eftir að hafa fylgst með dálitla stund getur skoðandinn sagt okkur með 6 sekúndna fyrirvara á hvorn hnappinn maðurinn ýtir næst. Hann veit sem sagt 6 sekúndum fyrr en maðurinn sjálfur hvað hann muni gera. Okkur finnst við vera eldklár og frumleg en heilinn er búinn að ákveða hvað við gerum mörgum sekúndum áður en við höldum að við séum að ákveða það.
Þetta þyrftu menn að vita í fótboltanum!

Comments