Hvernig geta einfaldar lýtaaðgerðir geta leitt til morðs á morð ofan?
Eins og oft áður þá er úrval leikaranna í þessari Cohen mynd ekkert smáræði. George Clooney, Brad Pitt, Frances McDormand, John Malkowich og fleiri. Og eins og venjulega er ekki yfirleikið heldur frekar undirleikið en án þess að karakterarnir verði sterilir eða óáhugaverðir. Textinn tekur mið af karakterunum, leikstjórn og leikur hárnákvæm og sviðsetning einföld og skýr. Sem sagt Cohen mynd í besta klassa.
Og eins og oft hjá þeim bræðrum þá er varla hægt að segja nokkuð frá efni myndarinnar án þess að skemma fyrir þeim sem eiga eftir að sjá hana. En ég get þó sagt að flækjurnar eru einfaldar og trúverðugar hver um sig en algjörlega ótrúlegar og margflóknar þegar á heildina er litið. Og framvinda myndarinnar er þannig að eftir að henni lýkur situr maður og hlær lengi lengi.
Fjórar stjörnur af fjórum ****

Recent Comments