Fargo er smábær (ca. 100.000) miðjavegu milli Minneapolis og Winnipeg sem er að hálfu leyti í North Dakota og að hálfu í Minnesota. Um 80% íbúanna eru af þýskum og skandinavískum (að mestu norskum) uppruna og bærinn á 2 vinabæi, annan í Noregi og hinn í Svíþjóð (Wikipedia). Glæpir eru með því minnsta sem þekkist í BNA, atvinnuleysi lítið og velferð almennt með ágætum. Á þessum slóðum tóku margir Íslendingar sér bólfestu á árunum fyrir 1900.
Coen bræður gera mikið úr áhyggjuleysi og nægjusemi íbúa Fargo, sem tala ensku með þýsk-norskum hreim, heita skandinavískum nöfnum og una glaðir við sitt um hávetur í hörku gaddi og blindbyl. Meira að segja hrottaleg morð raska ekki ró lögreglustjórans, sem er komin 7 mánuði á leið. Hún leggur sig ekki síður fram um að stappa stálinu í eiginmanninn, sem fær að teikna 3 centa frímerkið en vildi fá að teikina það 25 centa, en að eltast við morðingja.
Morðingjarnir eru af allt öðru sauðahúsi. Þeir eru aðkomumenn og tilfinninga- og siðlausir heimskingjar í algjöru rugli. Það þarf því ekki að koma á óvart að allt fer úr böndunum hjá þeim eins og reyndar hjá bílasalanum og einfeldingnum Lundegaard sem setti þessa ótrúlegu en sannsögulegu atburðarás af stað.
Coen bræður hafa lag á að sjá það spaugilega í lífinu, - og í dauðanum líka. En húmorinn er all svakalega dökkur á köflum. Þetta verður enn skýrara þar sem lögreglustjórinn Gunderson er leikinn af Frances Macdormand á einstaklega látlausan og fínlegan hátt. Leikararnir standa allir fyrir sínu og maður stendur upp og finnst að hver og einn hafi verið sá eini rétti fyrir sitt hlutverk. Þetta eru sumpart leikarar sem Coen bræður nota í fleiri myndum eins og t.d. Steve Buscemi sem á stjörnuleik.
[Marge is interviewing the two hookers whose clients were the two suspects]
Hooker No. 1: Well, the little guy was kinda funny-lookin'.
Marge Gunderson: In what way?
Hooker No. 1: I dunno... just funny-lookin'.
Marge Gunderson: Can you be any more specific?
Hooker No. 1: I couldn't really say... He wasn't circumcised.
Marge Gunderson: [amused by this unhelpful detail] Was he funny lookin' apart from that?
Hooker No. 1: Yah...
Marge Gunderson: So, you were havin' sex with the little fellow, then.
Hooker No. 1: Uh huh...

Comments