Emma flutti til mín í fyrradag. Hún er fædd 30. sept 2009 og því ekki einusinni orðin 5 mánaða gömul. Ég er himinlifandi en Kolla áskilur sér tíma til taka afstöðu. Ef hún hefði verið alveg frísk væri hún löngu búin að leggja Emmu línurnar um hegðun en leggur það ekki á sig verandi með hastarlega liðagigt.
Eins og við var að búast þá lagðist ég í dálitla rannsóknarvinnu varðandi tegundirnar sem Emma ber í sér. Ég er ekki svo klár í DNA-rannsóknum þannig að ég notaði netið og þær upplýsingar sem ég hafði um foreldra hennar. Mér skildist að pabbinn væri að mestu Labrador og mamman að mestu terrier og Border Collie. Hmmmm.
Ég veit ýmislegt bæði um Border Collie og Labrador en ekkert um terrier hunda. Þess vegna byrjaði ég þar og varð strax margs vísari. Það kemur í ljós að hún er sláandi lík Jack Russell Terrier og enn líkari Parson Russell Terrier, sem er mjög svipaður þeim fyrri en stærri. Lita skiptingin er lík því sem algengt er hjá Russell Terrier og liturinn líka. Sama er að segja um lagið á skrokknum, skottið (sem venjulega er stytt), fætur og hlutföll að miklu leyti.
Hún er hinsvegar talsvert stærri en Parson Russell. Þeir eru af ýmsum stærðum en algeng stærð er um 30-35 cm og 6-8 kg. Emma er strax orðin 41 cm og 12 kg. Eyrun eru mjög lík Labrador eyrum og höfuðlagið nema blátrýnið mjög líkt Border Collie.
Og mér sýnist skap og hegðun sverja sig í ætt með Parson Terrier því Emma er alltaf á ferðinni, örugg með sig og bæði næm, hlýðin og kát. Þessir hundar eru sagðir duglegir að læra þrautir, hundfimi og hegðun. Allt er þetta undir því komið að þeir finni sterkan leiðtoga því annars hætta þeir að hlýða. Þeir þurfa mikla hreyfingu og þar sem þeir eru veiðihundar þá elta þeir bráð og kettir eru ekki endilega óhultir nema þeir hafi alist um með hundinum. Að öllu jöfnu ættu þeir ekki að ganga lausir innan um fólk og umferð. Emma lagði sig ekkert í fyrradag þegar ég fékk hana en fór beint að sofa þegar ég sagði henni að gera það og var kyrr í bælinu sínu alla nóttina. Í gær lagði hún sig ekki heldur en í dag hefur hún tekið sér tíma til að hvíla sig. Á fyrsta degi skeit hún í bílinn hjá mér, á öðrum degi skeit hún fjórum sinnum fyrir hádegi (úti að sjálfsögðu) og í dag ældi hún í bílinn.
Hún er ekkert spennt fyrir að fara í bíl en leggst þó niður og virðist láta fara vel um sig. Mér dettur í huga að hún gæti verið bílveik. Sjáum til með það.
Efst er Emma hitt eru Parson Russell Terriers af netinu.

Recent Comments