Þetta er skrifað kl 0500 að morgni fimmtudagsins 26.08.04, dagsins sem kgauti leggur í'ann til Ungverjalands. Þetta verða meiriháttar kaflaskipti í lífi hans og mínu. Undanfarin 23 ár höfum við búið samlokubúskap á sameiginlegu heimili okkar, hann að mestu uppá mig kominn um flesta hluti megnið af þessum tíma. Það var um áramótin 8o/81 sem við hófum þann búskap, ef ég man rétt.
Nú leggur hann út í lífið og stofnar í raun sitt fyrsta heimili fjarri heimahögum. Ef allt fer samkvæmt áætlun mun hann varla eiga afturkvæmt á mitt heimili. Næstu 6 árin amk kemur hann til ameð að búa í Ungverjalandi. Eftir það veit enginn. Í lífinu verða ýmis kaflaskipti á ýmsum aldri og þetta eru ein af þeim.
Ferðaáætlunin gerir ráð fyrir Kaupmannahöfn, München og Budapest í flugi og síðasta legginn í bíl til Debrecen. Þangað verður hann varla kominn fyrr en á tíunda tímanum að staðartíma. Veðurspáin gerir ráð fyrir þrumuveðri og 27° hita í Debrecen. Hitinn fer síðan niður í 8° næstu nótt. Allt talsvert öðruvísi en við eigum að venjast.
Í Wikipedia Encyclopiedia stendur:
Debrecen is a town of Hungary, capital of the county of Hajdú-Bihar, 143 miles (230 km) east of Budapest by rail. Population (2001) 211,000 (250 þús samkv. öðrum heimildum).
It is located on the Great Hungarian Plain (Alföld) and it is the second largest city in Hungary.
"Who in his sane mind would build a city in the middle of a plain with no hill and no water?" -- once people asked about Debrecen, yet the city has grown into a vibrant center of culture, arts and science.
The city has had a rich history since its founding. It was a center of Calvinism (it used to be called the Calvinist Rome), and even served for a short time in the 19th century as the capital of Hungary.
The city is unfortunately quite off the center of the Hungarian traffic system (one railway and one highway - the number 4 - goes there), so it is time consuming to travel there from Western Hungary. The government has plans to build the #3 (Eastern) dual highway longer (or to build the #4 (South-Eastern) dual highway, which does not even exist) and reconnect the city into the fast flow of traffic and economy.
Í háskólanum eru um 26.000 stúdentar. Læknadeildin er að mér skilst staðsett í skógarjaðri í norðurhluta eða rétt fyrir norðan borgina. Þar eru yfir 1000 stúdentar. Miðað við gögn á netinu gæti borgin verið dálítið "sveitó". Sem sagt öðruvísi en týpísk vestur-Evrópu borg. Hún var á öldum fyrr byggð úr timbri þar sem náttúrusteinn var ekki við hendina. Hún varð oft fyrir eldsvoðum og er því líklega ekki heilsteypt frá arkitektóniskum sjónarhóli séð.
Þetta á ég vonandi eftir á sjá eigin augum síðar.

Comments