laugardagur, 20. júní 2009

Göngum í Noreg

kóngafólk

Okkur sárvantar auðvitað svona alvöru fólk. Það er ekki spurning. Er ekki bara rétt að við sækjum um að gerast nýlenda Danaveldis aftur? Eða kannske þegnar Noregskonungs? Við erum nú þegar komin með frábæran norskan (og óháðan) seðlabankastjóra og Eva Joly er greinilega mannseskja af þeirri tegund sem við þurfum verulega á að halda. Ekkert múður á þeim bæ.

Danir hafa auðvitað betri húmor en Norðmenn en á móti kemur að Norðmenn eru líkari okkur og þangað liggja allar ættir sem vert er að hafa orð á. En Danir eiga samt margt óuppgert við okkur og engin ástæða til að fara ekki í mál við þá. Fyrri kona Barna Jónasar langalangafa míns, hún Sesselja, var t.d. látin dúsa í Tugthúsinu (stjórnarráðinu) miklu lengur en efni og dómar stóðu til. Hún er strangt til tekið ekki formóðir mín af því að ég er komin af síðari konu Jónasar, en það má vel reyna málsókn vegna vinnutaps sem bitnaði auðvitað á Jónasi og þar með á síðari konu hans og langalangömmu minni og að lokum á mér. Það eru einmitt 200 ár síðan þessir hræðilegu atburðir áttu sér stað og mér reiknast til að með vöxtum og vaxtavöxtum hafi upphæðin milljónfaldast eða svo á þessum árum. Og svo kemur verðtrygging ofan á. Það er ekki spurning.

Að öllu meðtöldu þá legg ég þó til að við sækjum frekar um aðgang að Noregi. Endurvirkjum bara Gamla Sáttmála. Um leið myndum við að sjálfsögðu fara í mál við Norðmenn vegna þess að þeir stóðu ekki við sáttmálann og skulda okkur þar af leiðandi svo sem eins og átta olíusjóði og verða að taka okkur til baka líka. Þetta bara blasir við. Það er ekki spurning.

Það væri nú ekki ónýtt að geta lagt Norðmönnum til okkar eigin alíslenska Skallagrím sem talar norsku reiprennandi í staðinn fyrir norska Skallagríminn sem Norðmenn sendu okkur fyrir svo löngu síðan og sem gat af sér einhvern mesta terrorista gjörvallrar veraldarsögunnar. Hann Egil Skallagrímsson. Landamæraerjur nokkurra araba út af eyðimerkurlandi í Austurlöndum eru nú ekki stórmiklar miðað við land- og arfheimtuaðgerðir Egils hér á árum áður. Egill gerði það gott í Englandi líka og þess vegna urði Englar svo hræddir að þeir skelltu á okkur sérstökum terroristalögum þegar Davíð lét skína í tennurnar. Og þannig verður þetta þegar Skallagrímur jr. tekur Norðmenn til bæna vegna gamalla samningsrofa með InDefence lögfræðingana og nýja útrásarvíkinginn Sigmund Davíð sér við hlið. Norðmennirnir munu fölna og blikna og verða okkur auðsveip herraþjóð. Það er ekki spurning.

Nei, - Noregur, það er málið. Norðmenn eru satt að segja svo líkir okkur að það kæmi alveg til greina að veita þeim inngöngu í lýðveldið okkar, - ef þeir kæmu með kónginn með sér.

(Að vísu eru sumir eitthvað að rausa um að við eigum ættir til írskra þræla en það er bara lítilmótlegt nöldur og svo eiga Írarnir ekkert svona fínt fólk. Það er ótrúlegt hvað sumt fólk getur talað allt niður.)

mánudagur, 25. maí 2009

Fallnir í aðra deild

000A0860-9390-1D08-B89280BFB6FAFE6C Ég verð víst að viðurkenna að fótbolti er miklu skemmtilegri ef von er til þess að liðið manns nái góðum árangri. Það er þá að einhverju að keppa. Þannig hefur þetta ekki verið með liðið mitt undanfarin ár. Síðasti pistillinn minn um Newcastle United var skrifaður í jan 2008 og síðan þá höfum við haft 5 þjálfara ef ég tel Big Sam með.

Newcastle United er fallið í aðra deild og átti það fyllilega skilið. Undanfarnir 3 leikir gátu allir valdið úrslitum um það hvort við féllum en við megnuðum ekki að nýta okkur það. Til marks um dugleysi okkar og til að kóróna lánleysið þá féllum við á markinu sem við skoruðum í eigið mark í síðasta leik tímabilsins.

Mikeashleypa2_468x616Núverandi eigandi Newcastle United er Mike Ashley, nýríkur bísnismaður sem sver sig í ætt við Jón Ásgeir o.fl. útrásarvíkinga. Hann varð ríkur á því að kaupa vörumerki og reka sportvöruverslanir, er á svipuðum aldri og græðgisgæarnir okkar og á svipuðum slóðum á listum yfir ríka menn í Englandi. Og eins og suma þeirra dreymdi hann um að eignast fótboltalið. Það var svo hip.

 Hann keypti liðið fyrir tveimur árum og síðan hafa 6 stjórar komið við sögu, fótboltaforstjóri og tugir ráðgjafa um stjórnun og fótbolta sem töldu sig nú aldeilis vita allt um rekstur á fótboltaliði. Mestum hluta þjálfara, nuddara, sjúkraþjálfa, sálfræðinga, búningaþvottakonum og drykkjarvörudrengja hefur líka verið skipt út a.m.k. einu sinni. Og árangurinn er þessi.

Er þetta nokkuð kunnuglegt mynstur? Höfum við nokkuð horft uppá einhverja snillinga fljúga hátt og setja svo allt á hausinn?

miðvikudagur, 6. maí 2009

Myrká **

5663-400 Sennilega er Arnaldur Indriða orðinn svo flinkur að hann getur skrifað ágætar bækur blindandi með aðra höndina fyrir aftan bak. Ég fékk dálítið á tilfinninguna að Myrká hefði verið skrifuð þannig. Textinn er leikandi léttur og tær eins og lítil bergvatnsá í farvegi sínum. En það er eins og það vanti iðuköstin og flúðirnar.

Bókin fjallar að miklu leyti um nauðganir, um morð og rannsóknina á því og um Elínborgu og hennar fjölskyldu. Ég fékk á tilfinninguna að Arnaldur hefði aðeins haft áhuga í því síðastnefnda. Þótt hann reki tilfinningaástand fórnarlamba nauðgana finnst mér hann ekki skrifa um það af ástríðu. Sama er að segja um morðið og rannsóknina á því. Þar eru ýmsir lausir endar og meira skrifað af kunnáttu en innri þörf. Rannsóknin berst m.a. til ótiltekins krummaskuðs þar sem lýsingar á umhverfi og íbúum verður vægast sagt klisjukennd.

Elínborg lifnar hins vegar við í þessari bók. Hún eignast eiginmann og afkvæmi, sem áreiðanlega er fjallað um í fyrri bókum þó ég muni ekki eftir þeim, sem dregin eru skýrum og einföldum dráttum. Ég öðlaðist meira að segja smá skilning á mataruppskriftadellu Elínborgar. Það er dálítið magnað hvað mikið er fjallað um uppskriftir án þess að nokkurn tíman sé tilfærð uppskrift, eldaður matur eða setið að sælkerasnæðingi.

En bókin er ágætis lesning, bara ekki eins góð og sumar aðrar frá sama höfundi.

Tvær stjörnur af fjórum **